Ég ætla að segja ykkur frá fötunum ef þið hafið ekki þegar lesið
um þau í bæklingnum sem gekk um stofuna í dag.
Stelpur
Pólóbolir: Feykismekklegir pólóbolir fyrir kvenkynið. Þeir fást
í stærðum small(S), medium(M), large(L) og extra large(XL), bláum,
rauðum og hvítum lit. MR-merkið verður á brjósti.
Verð: 1700kr.
Stuttermabolir: Stuttermabolir þessa árs eru engu líkir. Þeir
innihalda undraefnið ELASTANE (7%), en það gerir þá teygjanlegti og
fyrirbyggir að bolirnir hlaupi í þvotti. Það eru allir flottir í
ELASTANE-bolum! Þeir fást í XS, S, M, L og XL í svörtum, hvítum og
rauðum. MR-verki á brjósti og baki.
Verð: 1500kr.
Hettupeysa: Ekki þjóta um í peysu sem er yesterday dull. Vertu
móðins í renndri MR-hettupeysu. Þær fást í stærðum S, M og L í
svörtum, gráum og bláum lit og verður MR-lógó á brjósti og baki.
(hægt er að sleppa merki á baki).
Verð: 3800kr.
Buxur: Hver þekkir ekki hversu mikið það sökkar að komast ekki í
buxurnar eftir jólin, páska eða tebó. Slíkt þekkist ekki þegar
MR-buxurnar eru annars vegar en þær fást í stærðum S, M, L og XL,
þá svartar og gráar, prýddar MR-merki í vasahæð.
Verð: 1700kr.
Strákar
Pólóbolir: Þessir pólóbolir koma sko með hössl-garantí! Þessir
tremmaflottu pólóbolir verða í stærðum XS, S, M, L, XL, XXL, XXXL
og XXXXL, í dökkbláum, svörtum og rauðum litum og með MR-merki á
brjóstinu.
Verð: 1800kr.
Stuttermabolir: Fyrir þann tískumeðvitaða kemur stuttermabolur
sem kallar ekki allt ömmu sína. Í rauninni kallara hann ekkert ömmu
sína en er samt svona líka hrikalegar flottur í stærðunum XS, S, M,
L, XL, XXL, XXXL og XXXXL, í svörtum, gráum og bláum lit. Þess má
gera að hann er með MR-merki á brjósti og baki.
Verð: 1000kr.
Hettupeysa: Rennd hettupeysa sem segir sex fæst í svörtu,
gráu og rauðu í stærðum S, M, L og XL. MR-merki verður á brjósti og
baki.
Verð: 3800kr.
Bindi: MR-bindin sem nutu mikilla vinsælda s.l. vetur verða nú
aftur í voði fyrir þann tískumeðvitaða. Þau eru svört með mynd af
Gamla skóla sem fyrr.
Verð: 1000kr.
Únísex (aka. bæði stelpur og strákar)
Töskur: Það er afleitt að mæta með íþróttafötin í Bónuspoka viku
eftir viku. MR-taskan er þitt tækifæri til að væta úr því en þetta
18 lítra ferlíki (40x28x1
verður haglega skreytt með MR-merki og
mun hún fást í rauðu, svörtu, grænu og dökkbláu.
Verð: 1600kr.
Hettupeysa: Hér eru á ferð peysur aðeins fyrir alvöru únísex
skólafólk! Bæði drengir og telpur gera valið á milli peysa í XS, S,
M, L, XXL og XXXL, í svörtum, gráum, bláum og rauðum lit. (ekki
rennd)
Verð: 3200kr.
Þið getið pantað hjá mér hvenær sem þið viljið. Væri flott ef
þið mynduð láta mig vita hvað þið vilduð, þ.e. t.d. hvernig peysu,
hvernig á litin, hvaða lógó, þið mynduð vilja. Svo mynduð þið fara
í mátunina því þetta eru skrítnar stærðir, best að máta svo þið
endið ekki með alltof stórar/litlar t.d. peysur. En já, þá eftir að
þið hefðuð mátað mynduð þið láta mig vita hvaða stærð þið væruð í!
Ég skila af mér pöntunarlistanum á miðvikud./fimmtud. í næstu viku.
Því þurfið þið að vera búin að panta áður en ég skila listanum af
mér. Þið borgið líka þegar þið pantið! Ég þarf að skila peningnum
af mér með listanum! Ef þið hafið einhverjar spurningar, þá bara
endilega spurjið mig 
Later pípols,
Eva.